Sport

Vill losna frá Real Madrid

Thomas Gravesen er orðinn leiður á að sitja á bekknum hjá Real Madrid
Thomas Gravesen er orðinn leiður á að sitja á bekknum hjá Real Madrid NordicPhotos/GettyImages

Danski miðjumaðurinn Thomas Gravesen hefur gefið það út í samtali við breska fjölmiðla að hann vilji losna frá spænska félaginu, því hann fái allt of lítið að spila. Gravesen hefur því verið mikið orðaður við lið í ensku úrvalsdeildinni, ekki síst sitt gamla félag Everton, sem virðist hafa saknað hans mikið síðan hann flutti í sólina á Spáni.

"Allir knattspyrnumenn vilja spila og ég er engin undantekning á því," sagði Gravesen. "Félagaskiptaglugginn er enn opinn og því er enn von fyrir mig. Ég get ekki haldið áfram svona, það er ljóst."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×