Innlent

Íslenskt skip staðið að ólöglegum veiðum

Frá Sandgerði.
Frá Sandgerði.

Lögregla stendur nú vakt við íslenskt fiskiskip sem kom til Sandgerðis undir morgun eftir að hafa verið staðið að ólöglegum línuveiðum suðvestur af landinu í gær. Þegar Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar var að fljúga yfir svæðið í gær tók áhöfnin eftir því að skipið var á lista Fiskistofu yfir skip, sem svipt hafa verið veiðileyfi, en slíkt er landhelgisbrot. Voru skipstjóranum þá gefin fyrirmæli um að halda til næstu hafnar og verður mál hans tekið fyrir í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×