Viðskipti erlent

Launahækkun hjá Deutsche Bank

Josef Ackermann, bankastjóri Deutsche Bank
Josef Ackermann, bankastjóri Deutsche Bank Mynd/AFP
Deutsche Bank, stærsti banki Þýsklands, greindi frá því í dag að laun stjórnarmanna bankans hefðu numið 28,7 milljón evrum á síðasta ári. Það er 14 prósenta hækkun á milli ára.

Josef Ackermann, bankastjóri Deutsche Bank, fékk 11,9 milljón evrur, jafnvirði 1 milljarðs króna, í laun og önnur hlunnindi á síðasta ári.Árið 2004 fékk hann 10,1 milljón evrur í laun og hlunnindi.

Ackermann var harðlega gagnrýndur á síðasta ári þegar hann greindi frá góðum hagnaði bankans á sama tíma og tilkynnt var um uppsagnir þúsunda starfsmanna bankans. Þá hefur hann sömuleiðis verið kærður í máli sem tengist bónusgreiðslum til æðstu stjórnenda farsímafyrirtækisins Mannesmann AK í þann mund sem farsímafyrirtækið Vodafone PLC tók fyrirtækið yfir árið 2000. Greiðslurnar, sem þóttu ólögmætar, voru mun hærri en greiddar höfðu verið. Ackermann var í stjórn Mannesmann þegar þetta var. Hann var sýknaður í málinu ásamt öðrum sakborningum fyrir tveimur árum en búist er við að málið verið tekið upp á nýjan leik á næstunni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×