Fótbolti

Ég er kominn til Real Madrid til að vinna

Fabio Cannavaro er ekki kominn til Real Madrid til að standa í neinu dútli
Fabio Cannavaro er ekki kominn til Real Madrid til að standa í neinu dútli

Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro segist ekki skilja hvernig standi á því að stórlið Real Madrid hafi ekki unnið titil í þrjú ár, en segist staðráðinn í að gera sitt til að breyta því á næstu leiktíð. Cannavara gekki í raðir spænska liðsins frá Juventus á dögunum og leikur nú undir stjórn gamla stjóra síns frá því hjá Juventus, Fabio Capello.

"Ég skil ekki af hverju jafn stórt félag og Real hefur ekki unnið neitt svona lengi. Við erum stærsta og besta félagið hérna og munum fljótlega komast aftur á sigurbraut. Ég gekk í raðir Real Madrid til að vinna og til að hjálpa liðinu að verða enn stærra," sagði ítalski landsliðsfyrirliðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×