Fótbolti

Laporta gefur aftur kost á sér

Joan Laporta stillir sér hér upp við hlið Eiðs Smára Guðjohnsen og Frank Rijkaard, þjálfara Barcelona.
Joan Laporta stillir sér hér upp við hlið Eiðs Smára Guðjohnsen og Frank Rijkaard, þjálfara Barcelona. AFP
Joan Laporta ætlar að gefa aftur kost á sér sem forseti Evrópumeistara Barcelona, en á stjórnarfundi á föstudag var ákveðið að boða til forsetakosninga hjá félaginu eftir að í ljós kom að kjörtímabil Laporta væri úti þó hann hefði í raun aðeins setið í þrjú ár í valdastóli. Laporta segist gefa kost á sér í áframhaldandi embætti því hann beri hagsmuni félagsins í brjósti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×