Innlent

Vísar á bug ummælum fyrrverandi bæjarstjóra

Guðjón Hjörleifsson alþingismaður og fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segist hafa farið eftir leiðbeiningum starfsmanns hjá Ríkisskattstjóra þegar hann gaf rangar upplýsingar um stofnfé Eignarhaldsfélags Vestmannaeyja á skjali til hlutafélagaskrár. Starfsmaðurinn hafi tjáð honum að þetta væri algengt.
Guðjón Hjörleifsson alþingismaður og fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segist hafa farið eftir leiðbeiningum starfsmanns hjá Ríkisskattstjóra þegar hann gaf rangar upplýsingar um stofnfé Eignarhaldsfélags Vestmannaeyja á skjali til hlutafélagaskrár. Starfsmaðurinn hafi tjáð honum að þetta væri algengt.
Ríkisskattstjóri vísar á bug ummælum Guðjóns Hjörleifssonar, alþingismanns og fyrrverandi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, um að sú vinnuregla eða hefð hafi skapast um að stofnfé hlutafélaga sé ekki allt greitt við skráningu hlutafélaga. Í tilkynningu frá Ríkisskattstjóra segir að í tilefni fréttar í kvöldfréttum NFS á miðvikudag og í fréttaþættinum Ísland í dag gerir ríkisskattstjóri eftirfarandi athugasemdir:

Fjallað var um skráningu Eignarhaldsfélags Vestmannaeyja hf. í hlutafélagaskrá á árinu 2001. Í umfjölluninni var talað um "hlutafélagaskrá hjá ríkisskattstjóra" og vísað til meintra orða "starfsmanns hjá ríkisskattstjóra". Vegna þess orðalags vekur ríkisskattstjóri athygli á að hlutafélagaskrá var á árinu 2001 starfrækt af Hagstofu Íslands. Ríkisskattstjóri tók ekki við starfrækslu hlutafélagaskrár fyrr en 1. júlí 2003 í framhaldi af breytingum á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, og lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög. Starfræksla hlutafélagaskrár á árinu 2001 var því ríkisskattstjóra óviðkomandi.

Hjá viðmælanda fréttamanns kom m.a. fram að hann teldi það vinnureglu eða hefð að hlutafé væri ekki greitt fyrr en eftir skráningu hlutafélaga. Í tilefni þeirra orða áréttar ríkisskattstjóri að það er ófrávíkjanlegt lagaskilyrði fyrir skráningu hlutafélags í hlutafélagaskrá að hlutafé að lágmarki kr. 4.000.000 hafi þegar verið greitt við skráningu. Í samræmi við það er á tilkynningareyðublaði um stofnun hlutafélags gert ráð fyrir að allir stjórnarmenn, auk kjörinna endurskoðenda eða skoðunarmanna, staðfesti með undirritun sinni m.a. upplýsingar um greiðslu hlutafjár. Skráning í hlutafélagaskrá byggir á upplýsingum sem gefnar eru á ábyrgð stjórnarmanna í tilkynningu og stofngögnum félagsins, að virtum form- og efniskröfum laganna. Ríkisskattstjóri vísar á bug ummælum um meinta vinnureglu eða hefð um aðra framkvæmd við skráningu hlutafélaga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×