Erlent

Hastert biðst afsökunar

Dennis Hastert svarar spurningum fréttaamanna fyrir utan skrifstofu sína í gær.
Dennis Hastert svarar spurningum fréttaamanna fyrir utan skrifstofu sína í gær. MYND/AP

Dennis Hastert forseti bandarísku fulltrúadeildarinnar hefur beðist afsökunar vegna kynlífshneykslis fyrrum þingmanns Repúblikana, Marks Foleys. Hann segist hins vegar ekki ætla að segja af sér.

Hastert neitar fréttum þess efnis að hann hafi vitað af kynlífsskilaboðum Foleys en ekki gripið í taumana. Hann segist fyrst hafa fengið vitneskju um málið á föstudag.

Hastert ásakaði demókrata fyrir að nota hneyksið sér til framdráttar vegna komandi kosninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×