Brasilíumenn að kaupa Corus? 13. desember 2006 06:15 Corus Tveir stálframleiðendur hafa keppst um að gera yfirtökutilboð í bresk-hollenska stálfyrirtækið Corus. MYND/AFP
Slagurinn um bresk-hollenska stálfyrirtækið Corus harðnaði þegar brasilíski stálframleiðandinn CSN gerði yfirtökutilboð í fyrirtækið aðfaranótt mánudags. Tilboðið hljóðar upp á 4,9 milljarða punda eða um 667 milljarða íslenskra króna. Verði af kaupum CSN á Corus verður til fimmti stærsti stálframleiðandi í heimi með 24 milljóna tonna framleiðslugetu á ári. Tilboðið kom nokkuð á óvart enda hafði indverski stálframleiðandinn Tata Steel, sem fram til þessa hefur verið orðaður við Corus, fengið samþykki stjórnar Corus fyrir yfirtökutilboðinu í félagið nokkrum klukkustundum fyrr. Síðasta tilboð Tata Steel hljóðaði upp á 500 pens fyrir hvern hlut í Corus eða jafnvirði 640 milljarða íslenskra króna. Tilboð CSN var hins vegar 15 pensum hærra og hefur verið haft eftir talsmanni fyrirtækisins að stjórn Corus hefði mælt með því við hluthafa stálframleiðandans að þeir tækju tilboðinu. Kapphlaupið um Corus hefur keyrt verðið upp á bresk-hollenska stálframleiðandanum en gengið hækkaði um 5,5 prósent á markaði í dag. Gengið stendur nú í 527,75 pundum á hlut sem er 12,75 pensum yfir tilboði CSN.
Mest lesið „Í eitt skipti hringdum við í fréttaskot DV því fyrir það fengum við pening!“ Atvinnulíf Fara í steininn ef þeir punga ekki út tveimur milljörðum innan mánaðar Viðskipti innlent Neytendastofa hjólar í hlaupara Neytendur „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ Atvinnulíf Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Viðskipti erlent Tugmilljarða hagsmunir í húfi Viðskipti innlent Eyrir skuldlaus og með 62 milljarða hlut í JBT Marel Viðskipti innlent Frá Sjálfstæðisflokknum til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Kjarninn farinn úr Heimildinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira