Starfar ekki sem lögmaður aftur 27. september 2007 18:57 Helgi Jóhannesson, formaður Lögmannafélags Íslands.
Lögmannafélag Íslands hafði ekki hugmynd um að Róbert Árni Hreiðarsson væri grunaður um kynferðisbrot fyrr en fjallað var um málið í fjölmiðlum. Formaður félagsins segir að lögreglan ætti að hafa heimild til að tilkynna félaginu ef grunur leikur á að lögmaður hafi framið lögbrot. Róbert Árni mun að öllum líkindum aldrei starfa sem lögmaður á ný. Róbert Árni var sem kunnugt er dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir kynferðisbrot gegn fjórum ungum stúlkum. Brot Róberts Árna þóttu sérstaklega gróf með tilliti til þess að hann hefur í starfi sínu sem lögmaður verið verjandi meintra kynferðisbrotamanna og verið réttargæslumaður fyrir þolendur kynferðisbrota. Sem slíkur hefur hann meðal annars verið við yfirheyrslur í Barnahúsi. Þrátt fyrir að rannsókn málsins hafi staðið yfir hjá lögreglu í um tvö ár þá frétti lögmannafélag Íslands ekki af því fyrr en fjallað var um það í fréttaskýringaþættinum Kompási fyrir rúmri viku síðan. Helgi Jóhannesson, formaður Lögmannafélags Íslands segir að siðanefnd lögmanna hefði getað farið fram á að Róbert Árni yrði sviptur réttindum tímabundið á meðan rannsókn fór fram en til þess hefði félagið þurft að vita af því að rannsókn stæði yfir. Hann segir að lögreglan ætti að hafa heimild til eða vera skylt að tilkynna siðanefnd lögmanna ef lögmaður er grunaður um glæp. Róbert Árni var sviptur lögmannsréttindum sínum í gær og tók sviptingin strax gildi. Að sögn Helga þá mun hann ekki starfa sem lögmaður aftur þar sem lögmönnum beri að vear með óflekkað mannorð. Það hafi Róbert Árni ekki nema forseti Íslands veiti honum uppreist æru.
Mest lesið Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Erlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins Innlent Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Innlent Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Innlent Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Innlent Hringbraut lokað vegna bílslyss Innlent Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Innlent Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Innlent Spánverjar óska eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Eurovision Erlent Fleiri fréttir Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Tifandi tímasprengjur á götum borgarinnar Hringbraut lokað vegna bílslyss Tifandi tímasprengjur, Kári um ósmekklegar tilraunir og stærðfræði-Helgurnar Nemendur fái inn hjá Tækniskólanum Engar hvalveiðar Hvals í sumar Kristrún og Guðmundur leiða áfram flokkinn Aðalsteinn leiðir samráðshóp um öryggis- og varnarmál Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Bílastæðin fullbókuð um páskana „Tengdamömmumálið“ komið til Persónuverndar Dómur sterabolta mildaður verulega vegna tölvubréfs dómara Ólíklegt að Bandaríkjamenn gefi Íslendingum valið Hefja formlega rannsókn á SVEIT og Virðingu Veiðifélag fær þriggja milljóna sekt vegna innflutnings á seiðum Gaman að fagna 25 ára afmæli í ríkisstjórn Launalausir starfsmenn greiða rafmagnsreikninginn Bílastæðasjóður græddi 270 milljónir á stækkun gjaldsvæðis Enn óvissa á mörkuðum og Kristrún vill flýta sér hægt Rangur maður grunaður um að valda sjónskerðingu á myrku dansgólfi Alþingi komið í páskafrí „Það verður almannavá, dauðsföll munu færast á annað stig“ Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum - Hvert stefnir Ísland? Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Sjá meira