Venables: McLaren er fullur sjálfstrausts 11. febrúar 2007 14:49 Steve McLaren hefur ekki náð að stilla strengi enska landsliðsins. MYND/Getty
Terry Venables, aðstoðarþjálfari enska landsliðsins í fótbolta, segir að sjálfstraust Steve McLaren hafi ekki beðið hnekki þrátt fyrir gríðarlega gagnrýni fjölmiðla og almennings í Englandi eftir tap enska liðsins gegn Spánverjum í síðustu viku. Venables segir hins vegar engan taka gagnrýnina eins nærri sér og Venables. "Þrátt fyrir allt sem hefur verið sagt og skrifað, þá hafa Steve og ég sjálfur óbilandi trú á liðinu. Við erum sannfærðir um að við vinnum næstu tvo leiki í undankeppni EM," sagði Venables við enska fjölmiðla í morgun. Næstu leikir enska liðsins eru gegn Ísrael og Andorra, og er talað um skyldusigur Englendinga í þeim báðum. "Við gerum okkur fyllilega grein fyrir afleiðingunum ef við töpum fyrir Ísrael en við vitum að þegar við getum stillt upp okkar sterkasta liði eigum við að vinna báða þessa leiki. Leikurinn gegn Spáni var ekki sá fyrst sem England tapar í vináttuleik og það er heldur ekki í fyrsta sinn sem enskt landslið hefur verið baulað af leikvelli," segir Venables. "En ég get sagt ykkur að enginn er vonsviknari með stöðu mála en Steve. Ég sá sársaukann í andliti hans. Það eitt segir ykkur hversu miklar tilfinningar hann ber til liðsins. Hann vill vinna og sættir sig ekki við neitt annað," bætti Venables við.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið „Ég gæti ekki verið ánægðari“ Handbolti Dagur gæti gert það sem enginn þjálfari hefur afrekað í handboltasögunni Handbolti Lekur úr lofti og leik Hauka og Þórs frestað Körfubolti Hreiðar Levý um skrif Víðis: Að líkja þessu við landráð er pistlahöfundi til skammar Handbolti Liverpool ótrúlega nálægt hundrað milljónum en náði þeim ekki Enski boltinn City mætir Real Madrid í umspilinu Fótbolti Hákon búinn að fórna miklu: „Ég stefni bara á meira og enn hærra“ Fótbolti Orri og Elías í einvígi um að mæta ensku stórliði Fótbolti Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“ Handbolti Magnaðar móttökur fyrir utan höllina kveiktu í strákunum hans Dags Handbolti Fleiri fréttir Sannfærður um að Watkins fari ekki frá félaginu Liverpool ótrúlega nálægt hundrað milljónum en náði þeim ekki Kristianstad um söluna á Hlín: Hefði ekki gerst fyrir fjórum til fimm árum Hlín til liðs við Leicester City Sakar Arteta um að ýta undir dómarahatur Gagnrýnir Durán: „Ekki alvöru fótboltamaður“ Amorim um Rashford: Ef hann breytist þá mun ég nota hann Foden skýtur á Southgate Amorim og Rashford talast ekki við Prestur sagði við Gakpo að hann myndi semja við Liverpool Man. United tók annað árið í röð efnilegan leikmann frá Arsenal Manchester United fær grænt ljóst fyrir Wembley norðursins Tólf leikmenn Liverpool fá hvíld: „Græðum aldrei á að tapa“ Jón Daði óstöðvandi á nýjum stað Dani fyrstu kaup Amorim hjá Man. Utd Viðurkenna mistök og Arsenal-maðurinn laus við bann Oliver dæmir um helgina þrátt fyrir morðhótanir Segir enga leið til baka fyrir Rashford hjá United Komust yfir fjölda símanúmera leikmanna í ensku deildinni City búið að eyða meira en öll hin liðin til samans Biðst afsökunar á hegðun sinni og kemur út úr skápnum Villa berst við nágrannana um Disasi Njósnarar enskra stórliða sáu Hákon skína skært Xabi vill sækja liðsstyrk til Pep Segir VAR ekki hafa þorað að snupra Oliver Fékk gult spjald fyrir að herma eftir mávi „Cole, Pep var að spila með þig“ Amorim segist nota 63 ára markmannsþjálfara sinn frekar en Rashford Markaskorarinn Martínez: Ég var heppinn Martínez hetja Rauðu djöflanna Sjá meira