Beckham gæti spilað fyrir Real 27. janúar 2007 13:43 David Beckham hefur horft á síðustu leiki Real Madrid úr nokkurri fjarlægð og oftar en ekki er hann með mömmu sína sér við hlið - eins og sést á þessari mynd. MYND/AFP
Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, hefur dregið úr þeim ummælum sem hann lét falla fyrir nokkrum vikum um að David Beckham myndi ekki spila aftur fyrir félagið þar sem hann hefur samið við LA Galaxy í Bandaríkjunum. Capello segir nú að ef Beckham sé í góðu formi og sýni rétt viðhorf eigi hann möguleika á að komast í liðið. "Ég á enga vini né óvini í mínum leikmannahóp. Ég vel einfaldlega þá leikmenn í liðið sem ég treysti best á því augnabliki. Eins og við á um alla leikmenn veltur ákvörðun mín að miklu leyti á líkamlegu ásigkomulagi þeirra. Ég get ekki valið Beckham núna þar sem hann á við hnémeiðsli að stríða," sagði Capello, sem var spurður hvort að hann hefði gert mistök með því að fullyrða að Beckham fengi aldrei að spila aftur fyrir Real. "Fólk getur gert mistök en þessi ákvörðun á sínum tíma var tekin af öllu þjálfarateyminu," svaraði Capello en það teymi telur þrjá menn, þar af Capello sjálfan. "Þegar ég sé að hann er í góðu formi og sýnir rétt viðhorf þá gæti hann orðið hluti að liðinu á ný. En hann verður að sýna mér að hann er tilbúinn að leggja það á sig," bætti Capello við.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Spænski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira