Barcelona aftur á toppinn eftir sigur gegn Celta 28. janúar 2007 19:50 Ronaldinho skoraði úr vítaspyrnu í kvöld. MYND/Getty
Barcelona er á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Celta Vigo í kvöld þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en skammt var eftir af leiknum. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á í lið Barcelona þegar tæpar 10 mínútur voru eftir. Javier Saviola kom heimamönnum yfir á 34. mínútu með sínu fimmta deildarmarki á tímabilinu en hann var tekinn fram yfir Eið Smára í byrjunarlið Barca þriðja leikinn í röð. Anderson Nene jafnaði metinn úr vítaspyrnu á 67. mínútu og stefni margt í að Barcelona tapaði enn einu sinni stigum á heimavelli. Ronaldinho skoraði hins vegar úr vítaspyrnu á 78. mínútu og Ludovic Giuly gulltryggði sigurinn sjö mínútum síðar með marki úr skyndisókn. Eiður Smári kom inn á fyrir Saviola á 83. mínútu en kom lítið við sögu þær mínútur sem hann spilaði Barcelona er með 42 stig á toppi spænsku deildarinnar, einu stigi meira en Sevilla sem lagði Levante fyrr í dag í miklum markaleik þar sem lokatölur urðu 4-2. Freddie Kanoute, Alexandr Kerzhakov og Alfaro skoruðu mörk Sevilla auk þess sem eitt markanna var sjálfsmark frá Levante. Real Madrid er í þriðja sæti með 38 stig en Valencia getur komist upp fyrir Real með því að leggja Real Betis af velli á útivelli síðar í kvöld.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Spænski boltinn Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótboltaráðstefna Norðurlanda í Reykjavík næsta vor Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fram fær liðsstyrk úr Breiðholti „Þetta er dýrmætur tími og maður finnur hvað þetta skiptir mann miklu máli“ Gísli Gottskálk verðlaunaður með nýjum samningi Efast um dugnað og hugarfar Rashford Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Tímabilið búið hjá Rodri Hermann hættur með ÍBV Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Bestu guttarnir í Bestu deild karla Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Sjá meira