Saviola vill helst fara til Ítalíu 9. febrúar 2007 19:49 Saviola vill helst vera áfram í herbúðum Barcelona. MYND/AFP
Javier Saviola, félaga Eiðs Smára Guðjohsen hjá Barcelona, langar mest að fara til Ítalíu fari svo að spænska félagið bjóði honum ekki nýjan samning eftir núverandi tímabil. Saviola kveðst aldrei munu svíkja Barcelona með því að ganga til liðs við Real Madrid en hann útilokar ekki að vera áfram hjá Barca. "Ekkert er ákveðið ennþá. Eitt er þó víst að ég mun aldrei svíkja Barcelona með því að fara til Real Madrid. Það er eina liðið sem ég get strax útilokað," sagði Saviola við spænska fjölmiðla í dag. "Ef ég skipti um lið verður það líklega til að fá nýja reynslu í öðru landi," bætti hann við. Saviola hefur farið mikinn með Barcelona síðustu vikur og er jafnvel talið að forráðamenn félagsins bjóði honum nýjan samning fyrir vikið. Samningur Argentínumannsins við Barcelona rennur út í sumar og er honum í raun frjálst að semja við önnur lið. Fari svo að Saviola fari frá félaginu þykir líklegt að hann fari til Juventus, en ítalska liðið hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á sóknarmanninum. "Barcelona er ennþá minn fyrsti kostur en ég hef aðra möguleika, sérstaklega á Ítalíu. Ég verð að sjá hvort og þá hvað Barcelona býður mér og taka ákvörðun í framhaldi af því," segir Saviola.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Spænski boltinn Mest lesið Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Enski boltinn Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í Fótbolti Fljótasti Íslendingurinn er frá Hong Kong: „Meira en velkominn í landslið Íslands“ Sport Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Björgvin Karl með loforð eftir vonbrigði helgarinnar Sport Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn „Vinsamlegast látið hann í friði“ Fótbolti Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í „Vinsamlegast látið hann í friði“ Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Coote dómari í enn verri málum Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“ Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Tengdasonur Roy Keane í enska landsliðinu Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Hætt eftir drónaskandalinn Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot Sjá meira