Enski boltinn

Watford í undanúrslit

Watford varð í kvöld annað liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu þegar það bar sigurorð af 1. deildarliði Plymouth á útivelli. Fyrr í dag hafði Blackburn tryggt sig áfram en Man. Utd. og Middlesbrough þurfa að mætast að nýju, líkt og Chelsea og Tottenham.

Það var Hameur Bouazza sem skoraði eina mark leiksins í dag á 22. mínútu og kom það nokkuð gegn gangi leiksins, því heimamenn í Plymouth voru mun sterkari aðilinn í leiknum. Ben Foster í markinu átti hins vegar stórleik og hélt hreinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×