Körfubolti

Brynjar var frábær

"Það er orðið ansi hart að tapa tveimur leikjum í röð með þessum hætti. Brynjar skoraði meira en helming stiga liðsins í dag og hann var eini maðurinn sem var í lagi hjá okkur í sóknarleiknum," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, eftir tap hans manna gegn Snæfelli í dag.

"Brynjar var frábær hjá okkur í dag en ég er hræddur um að við verðum að fá eitthvað meira frá atvinnumönnunum okkar ef við ætlum okkur eitthvað í þessari keppni. Patterson er meiddur og hefur ekkert æft eftir síðasta leik - en við verðum að fá meira frá erlendu leikmönnunum. Nú verðum við að vinna þá í Stykkishólmi og það ætlum við okkur líka að gera og koma svo og klára þá hérna," sagði Benedikt í samtali við Sýn í dag og benti á að liðið hefði einnig lent undir gegn ÍR í fyrstu umferðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×