Björgólfur hafnar því að hafa þrýst á borgarstjóra vegna REI 8. október 2007 15:47 Björgólfur Guðmundsson átelur vinnubrögð DV.
Björgólfur Guðmundsson hafnar því að hafa þrýst á Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson um að flýta sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy DV greindi í dag frá orðrómi um að Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, hafi þrýst á Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóra, um að flýta samningum um sameiningu Reykjavíkur Energy Invest og Geysis Green Energy til þess að laga "... fjárhagsstöðu Hannesar gagnvart bankanum" eins og segir í blaðinu en Hannes Smárason er forstjóri FL Group sem er einn af stærstu hluthöfum í Geysi Green Energy. Björgólfur Guðmundsson segir að aðdróttanir DV um afskipti hans að máli þessu séu algjörlega útí hött. Hann hafi enga vitneskju haft um sameiningu Reykavík Energy Invest og Geysir Green Energy fyrr en tilkynnt hafi verið um hana í fjölmiðlum. Í yfirlýsingu frá Björgólfi segir að vinnubrögð DV í þessu máli séu vítaverð þar sem blaðið hafi hvorki leitað til Landsbankans né skrifstofu Björgólfs Guðmundssonar áður en blaðið birti ósannindi sem geti skaðað orðspor og hagsmuni Landsbankans og Björgólfs Guðmundssonar bæði hér heima og erlendis. Bankinn sé undir ströngu eftirliti fjármálayfirvalda í hverju því landi sem hann starfi auk alþjóðlegra matsfyrirtækja.
Mest lesið Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Erlent Hringbraut lokað vegna bílslyss Innlent Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Innlent Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins Innlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Lögreglan komin á vettvang þegar í ljós kom að bíllinn var rétt hjá Innlent Telja mögulegt að dularfullar bækur frá miðöldum tengist Íslandi Erlent Engar hvalveiðar Hvals í sumar Innlent „Tengdamömmumálið“ komið til Persónuverndar Innlent Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent Fleiri fréttir Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Tifandi tímasprengjur á götum borgarinnar Hringbraut lokað vegna bílslyss Tifandi tímasprengjur, Kári um ósmekklegar tilraunir og stærðfræði-Helgurnar Nemendur fái inn hjá Tækniskólanum Engar hvalveiðar Hvals í sumar Kristrún og Guðmundur leiða áfram flokkinn Aðalsteinn leiðir samráðshóp um öryggis- og varnarmál Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Bílastæðin fullbókuð um páskana „Tengdamömmumálið“ komið til Persónuverndar Dómur sterabolta mildaður verulega vegna tölvubréfs dómara Ólíklegt að Bandaríkjamenn gefi Íslendingum valið Hefja formlega rannsókn á SVEIT og Virðingu Veiðifélag fær þriggja milljóna sekt vegna innflutnings á seiðum Gaman að fagna 25 ára afmæli í ríkisstjórn Launalausir starfsmenn greiða rafmagnsreikninginn Bílastæðasjóður græddi 270 milljónir á stækkun gjaldsvæðis Enn óvissa á mörkuðum og Kristrún vill flýta sér hægt Rangur maður grunaður um að valda sjónskerðingu á myrku dansgólfi Alþingi komið í páskafrí „Það verður almannavá, dauðsföll munu færast á annað stig“ Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum - Hvert stefnir Ísland? Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Sjá meira