Handbolti

Ólafur næstmarkahæstur í stórsigri Ciudad Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad Real.
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad Real. Mynd/Vilhelm

Ólafur Stefánsson skoraði sjö mörk er lið hans, Ciudad Real, vann fjórtán marka sigur á Almeria, 40-26, í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær.

Ólafur skoraði eitt marka sinna úr víti og var næstmarkahæstur í liði Ciudad Real.

Ciudad Real er í fimmta sæti deildarinnar með fjögur stig eftir þrjár umferðir. Granollers og Barcelona eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga en Ciudad Real tapaði óvænt fyrir Valladolid í síðustu umferð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×