Fótbolti

Aron Einar vill fara frá AZ

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson, leikmaður AZ.
Aron Einar Gunnarsson, leikmaður AZ. Mynd/Heimasíða AZ

Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson vill fara frá hollenska úrvalsdeildarliðinu AZ Alkmaar sem nýtti sér ákvæði í samningi hans og framlengdi hann um eitt ár.

Þetta segir hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Aron er nítján ára gamall og átti samningur hans að renna út nú í sumar.

Hann segist vilja fara til annars félags eins og málin standa nú. „Það virðist ekki skipta neinu máli hvort ég standi mig vel eða ekki. Ég fer ekkert inn í aðalliðshópinn þó ég standi mig vel með varaliðinu og þess vegna vil ég fara."

Í fréttinni segir að þrjú ensk lið hafi sýnt honum áhuga, þeirra á meðal eitt sem leikur í úrvalsdeildinni.

Aron hefur staðið sig vel með íslenska landsliðinu að undanförnu og var til að mynda meðal bestu manna í 2-1 sigri liðsins í Slóvakíu á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×