Íslenski boltinn

KR-ingar unnu Fjölni

Elvar Geir Magnússon skrifar
Björgólfur Takefusa skoraði annað mark KR í kvöld.
Björgólfur Takefusa skoraði annað mark KR í kvöld.

KR vann góðan 2-0 sigur í síðasta leik þrettándu umferðar Landsbankadeildarinnar sem leikinn var í kvöld. Sigur KR var verðskuldaður en Vesturbæjarliðið var mun sterkara.

Gunnar Örn Jónsson kom KR yfir með glæsimarki í fyrri hálfleik en Björgólfur Takefusa bætti öðru marki við í seinni hálfleiknum úr vítaspyrnu.

Fylgst var með leiknum á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Hægt er að lesa lýsinguna með því að smella hérna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×