Lífið

Vanilla Ice látinn laus eftir handtöku

Vanilla Ice seldi 15 milljón eintök af laginu Ice Ice Baby árið 1990.
Vanilla Ice seldi 15 milljón eintök af laginu Ice Ice Baby árið 1990. MYND/AP

Rapparinn Vannilla Ice hefur verið sleppt úr haldi eftir að vera stungiði í steininn fyrir grun um að hafa hrint konu sinni. Söngvarinn sem réttu nafni heitir Robert Van Winkle, var handtekinn á fimmtudagskvöld á heimili hjónanna í Flórída.

Lögregla segir að eiginkonan hafi hringt í neyðarlínu og sagt að sparkað hafi verið í hana og hún slegin í rifrildi hjónanna. Seinna sagði hún lögreglumönnum að eiginmaðurinn hefði aðeins hrint sér.

Rapparinn neitar því að hafa hrint konunni samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Hann var samt sem áður ákærður fyrir heimilisofbeldi en látinn laus í gær eftir fyrirtöku málsins fyrir dómi.

Tommy Quon umboðsmaður hans sagðist ekki hafa heyrt um handtökuna og vildi ekki tjá sig.

Vanilla Ice sendi 15 milljón eintök af laginu Ice Ice Baby árið 1990. Hann gisti eina nótt í fangelsi árið 2001 eftir að hann var handtekinn í kjölfar heimiliserja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×