Fótbolti

Brasilía og Bandaríkin mætast í úrslitum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Úr leik Brasilíu og Þýskalands.
Úr leik Brasilíu og Þýskalands.

Ljóst er að það verða Brasilía og Bandaríkin sem mætast í úrslitaleik í fótboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum. Brasilía vann Þýskaland 4-1 í undanúrslitum áður en bandaríska liðið, ríkjandi Ólympíumeistarar, vann Japan 4-2.

Birgit Prinz kom Þýskalandi yfir í dag með fjórða marki sínu í jafnmörgum leikjum. Formiga jafnaði áður en Cristiane skoraði tvívegis og Marta setti eitt mark. Í hinum leiknum komst Japan óvænt yfir en svo tóku bandarísku stelpurnar völdin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×