Enski boltinn

Voronin lánaður til Þýskalands

Elvar Geir Magnússon skrifar

Úkraínski sóknarmaðurinn Andriy Voronin hefur verið lánaður frá Liverpool til þýska liðsins Herthu Berlín. Lánssamningurinn er út tímabilið.

Voronin gekk til liðs við Liverpool fyrir einu ári frá Bayer Leverkusen en hann hefur skorað fimm mörk í nítján deildarleikjum fyrir félagið. Hann er 29 ára og getur einnig leikið á miðjunni eða á kantinum.

Hertha Berlín er með fjögur stig eftir þrjár umferðir í þýsku úrvalsdeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×