Íslenski boltinn

HK fær tvo varnarmenn

Knattspyrnudeild HK hefur fengið tvo nýja varnarmenn til félagsins fyrir lokasprettinn í Landsbankadeildinni. Þetta eru Slóveninn Erdzan Beciri og Kósóvómaðurinn Benis Krasniqi, en þeir eru báðir varnarmenn.

Leikmennirnir hafa æft með HK undanfarna daga til reynslu og hafa nú unnið sér inn samning hjá félaginu. Þeir verða þó ekki gjaldgengir í kvöld þegar HK mætir Fram í Landsbankadeildinni í kvöld, en ættu að verða klárir þegar Kópavogsliðið mætir Keflavík í næstu viku.

"Þetta eru hörkugóðir leikmenn, þeir hafa sýnt það á æfingunum með okkur, og eiga eftir að styrkja okkur í baráttunni það sem eftir er sumars," sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari HK í viðtali á vef HK í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×