Íslenski boltinn

Heimir Snær kominn í Fjölni

Elvar Geir Magnússon skrifar
Heimir Snær er aftur kominn í Grafarvog.
Heimir Snær er aftur kominn í Grafarvog.

Miðjumaðurinn Heimir Snær Guðmundsson er genginn í raðir Fjölnis frá FH. Heimir lék með Fjölni á lánssamningi frá FH á síðustu leiktíð og stóð sig mjög vel þar.

Hann er 24 ára og lék 16 leiki í 1. deildinni með liðinu en fékk fá tækifæri hjá FH þegar hann kom aftur til liðsins. Heimir er orðinn löglegur og gæti verið í leikmannahópi liðsins gegn KR í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×