Íslenski boltinn

Leifur í leikbann

Elvar Geir Magnússon skrifar
Leifur Garðarsson.
Leifur Garðarsson.

Það var nóg að gera hjá aga- og úrskurðarnefnd KSÍ í dag sem dæmdi alls 60 manns í leikbann. Þar á meðal var Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis, sem var dæmdur í eins leiks bann vegna fjögurra áminninga.

Enginn leikmaður í Landsbankadeild karla fékk meira en eins leiks bann. Þrír Þróttarar voru dæmdir í leikbann en það eru Dennis Danry, Hallur Hallsson og Þórður Steinar Hreiðarsson.

Auk þeirra voru Tommy Nielsen (FH), Paul McShane (Fram), Ian Jeffs (Fylki), Finnbogi Llorenz (HK), Heimir Einarsson (ÍA) og Brynjar Guðmundsson (Keflavík) allir dæmdir í eins leiks bann.

Þess má geta að Styrmir Sigurjónsson hjá Fylki, fæddur 1994, var dæmdur í tveggja mánaða leikbann fyrir að sparka í dómara í leik með 4. flokki karla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×