Fótbolti

Kristinn dæmir í Póllandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristinn Jakobsson dómari.
Kristinn Jakobsson dómari. Mynd/Daníel

Kristinn Jakobsson mun dæma leik Póllands og Slóveníu í næsta mánuði en leikurinn er liður í undankeppni HM 2010. Liðin leika í þriðja riðli.

Þetta staðfesti Kristinn í samtali við Vísi. Hann mun ekkert dæma í þessari viku er keppt verður í forkeppnum Meistaradeildarinnar og UEFA-bikarkeppninnar.

„Eftir að landsleikina fæ ég væntanlega verkefni í UEFA-bikarkeppninni og svo er aldrei að vita hvað gerist í Meistaradeildinni. Maður bíður bara og vonar," sagði Kristinn.

Hann tilheyrir fyrsta flokki dómara hjá Evrópusambandinu og hefur verið boðaður á ráðstefnu í upphafi næsta mánaðar þar sem línurnar fyrir næsta keppnistímabil verða lagðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×