Handbolti

Arnór: Eigum mikið inni

Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar
Arnór Atlason, leikmaður íslenska liðsins í leiknum í nótt.
Arnór Atlason, leikmaður íslenska liðsins í leiknum í nótt. Mynd/Vilhelm
„Það er tilbreyting að vera ekki búinn að mála sig út í horn eftir fyrsta leik," sagði Arnór Atlason brosandi eftir leik. Arnór átti ágætan leik, mistækur á köflum en læt það ekki slá sig út af laginu, hélt áfram að vera grimmur og skilaði mjög góðum mörkum og þar á meðal markinu sem endanlega kláraði leikinn.

„Það eru fjórir leikir eftir og margt getur enn gerst í þessum riðli. Við vorum vel undirbúnir og gerðum það sem fyrir okkur var lagt. Við erum búnir að bíða lengi eftir þessum leik. Við vildum vinna þennan leik og vissum að við gætum það með eðlilegum leik."

„Við eigum enn mikið inni. Erum ekki að skora mikið úr hraðaupphlaupum og annað.Ég get því ekki verið annað en bjartsýnn á framhaldið. Þetta var bara fyrsti leikur af vonandi átta leikjum," sagði Arnór.

Menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og maður hennar Kristján Arason handboltakappi hvetja strákana áfram. Vilhelm Gunnarsson
Markverðirnir ráða ráðum sínum. Vilhelm Gunnarsson
Ólafur Stefánsson undrast á ákvörðun dómarans. Vilhelm Gunnarsson
Róbert Gunnarsson var öflugur á línunni. Vilhelm Gunnarsson
Rússar rétt fyrir leik. Vilhelm Gunnarsson
Snorri Steinn Guðjónsson fagnar einu af tólf mörkunum sem hann gerði í leiknum. Vilhelm Gunnarsson
Snorri Steinn í sókn. Vilhelm Gunnarsson
Einar Þorvarðarson fagnar með Snorra Steini. Vilhelm Gunnarsson
Ólafur Stefánsson undirbýr skot að marki.Nordic Photos / AFP
Sturla Ásgeirsson faðmar Ólaf að sér eftir leikinn.Nordic Photos / AFP
Alexander Petersson átti stórleik og fagnar hér einu af mörkunum sínum í leiknum.Nordic Photos / AFP
Arnór Atlason átti einnig gríðarlega góðan leik fyrir íslenska liðið og hér fagnar hann einu af sínum mörkum.Nordic Photos / AFP
Alexander tekur skot að marki.Nordic Photos / AFP
Markverðirnir Hreiðar Guðmundsson og Björgvin Páll Gústavsson fagna eftir leik.Nordic Photos / AFP
Ólafur Stefánsson var oft í strangri gæslu hjá rússnesku varnarmönnunum sem réðu reyndar illa við íslenska sóknarleikinn.Nordic Photos / AFP
Arnór átti margar góðar stoðsendingar í leiknum fyrir utan mörkin sem hann skoraði.Nordic Photos / AFP

Tengdar fréttir

Ólafur: Vinnum ekki Rússa á hverjum degi

Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, segir að allir leikmenn hafi lagt sitt af mörkum í sigri Íslands á Rússlandi í nótt.

Björgvin: Draumur að taka þátt

Björgvin Páll Gústavsson átti fínan síðari hálfleik í íslenska markinu í gær. Varði mikilvæg skot á góðum tímum. Þetta var fyrsti leikur Björgvins á stórmóti og frammistaðan lofar góðu fyrir framhaldið.

Róbert: Snorri átti stórleik

„Við gáfum rétta tóninn hér strax í fyrsta leik. Þetta var virkilega skemmtilegur leikur og allir voru að gefa sig hundrað prósent í verkefnið,“ sagði línumaðurinn Róbert Gunnarsson við Vísi eftir leik í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×