Fótbolti

Bandaríska kvennaliðið vann eftir framlengingu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað.

Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta var að vinna sitt þriðja Ólympíugull á fjórum leikum. Úrslitaleiknum er nýlokið í Peking en Bandaríkin unnu 1-0 sigur á Brasilíu í framlengingu.

Leikurinn var einstaklega tíðindalítill og bandaríska liðið virkilega varnarsinnað. Eftir fimm mínútna leik í framlengingunni kom eina markið en það skoraði Carli Lloyd.

Fyrr í dag vann Þýskaland bronsverðlaunin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×