Fótbolti

Frétt á heimasíðu Stabæk röng

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Veigar Páll Gunnarsson, leikmaður Stabæk.
Veigar Páll Gunnarsson, leikmaður Stabæk. Mynd/Scanpix

Á heimasíðu Stabæk var því haldið fram í gærkvöldi að Veigar Páll Gunnarsson og Pálmi Rafn Pálmason hefðu verið valdir í íslenska landsliðið. Það reyndist ekki rétt.

„Þetta er fax sem við sendum út á þá leikmenn sem koma til greina í landsliðsvalinu og félög þeirra. Það eru milli 40 og 50 leikmenn sem fá þessa tilkynningu," sagði Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari í samtali við Nettavisen.

„Ég hef ekki ákveðið mig enn hvenig 22 manna leikmannahópurinn lítur út. Það kemur fyrst í ljós á morgun, fimmtudag."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×