Íslenski boltinn

Ísland upp um eitt sæti

Elvar Geir Magnússon skrifar

Ísland er í 97. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA og hækkar um eitt sæti.

Evrópumeistarar Spánverja halda efsta sætinu og Þjóðverjar fara upp fyrir Ítali í 2. sætið.

Ef aðeins Evrópuþjóðir eru teknar með í reikninginn er Ísland í 41. sæti.

Azerbaijan, sem heimsækir okkur Íslendinga og leikur vináttulandsleik á Laugardalsvellinum þann 20. ágúst næstkomandi, er í 138. sæti á heildarlistanum og 48. sæti í Evrópu.

Topp 15:

1. Spánn

2. Þýskaland

3. Ítalía

4. Holland

5. Króatía

6. Brasilía

7. Argentína

8. Tékkland

9. Portúgal

10. Rússland

11. Rúmenía

12. Frakkland

13. Tyrkland

14. England

15. Kamerún








Fleiri fréttir

Sjá meira


×