Íslenski boltinn

Magni Fannberg hættur með Fjarðabyggð

Elvar Geir Magnússon skrifar
Magni Fannberg. Mynd/Bæjarins besta
Magni Fannberg. Mynd/Bæjarins besta

Magni Fannberg er hættur þjálfun Fjarðabyggðar í 1. deildinni. Liðið mætir Njarðvík á morgun er líklegt að David Hannah, aðstoðarþjálfari Fjarðabyggðar, stýri liðinu í þeim leik.

Magni tók við þjálfun Fjarðabyggðar af Þorvaldi Örlygssyni fyrir tímabilið.

Liðið er í 8. sæti deildarinnar en í síðasta leik vann það góðan útisigur á Haukum 4-2.

Magni var á síðasta ári yfirþjálfari yngri flokka hjá Val en sumarið 2006 var hann aðstoðarþjálfari Grindavíkur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×