Naumt tap hjá Fyllingen Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. október 2009 09:30 Andri Stefan í leik með Haukum. Mynd/Ole Nielsen
Andri Stefan skroaði tvö mörk fyrir norsku meistarana í Fyllingen sem töpuðu í gær fyrir Drammen á heimavelli, 37-36. Fjölmargir Íslendingar voru í eldlínunni með sínum liðum í gær. Fyllingen hefur ekki byrjað vel í deildinni og aðeins unnið einn af fyrstu þremur leikjum sínum. Drammen er hins vegar með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. Elverum hefur einnig unnið alla þrjá leiki sína til þessa. Sigurður Ari Stefánsson skoraði tvö mörk fyrir liðið er það vann Sandefjord á heimavelli, 25-24. Þá stóð Ólafur Haukur Gíslason í marki Haugaland sem tapaði fyrir Bækkelaget á útivelli, 29-24. Ólafur stóð sig vel en það dugði ekki til. Haugaland er í áttunda sæti deildarinnar með tvö stig, rétt eins og Fyllingen. Þá var leikið í þýsku B-deildinni í gær. Einar Ingi Hrafnsson skoraði fjögur mörk fyrir Nordhorn sem tapaði fyrir Ahlener á heimavelli, 29-28. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði ekki fyrir Ahlener í leiknum. Þá skoraði Agnar Jón Agnarsson tvö mörk fyrir Aue sem vann Korschenbroich, 30-27, á heimavelli. Hreiðar Levý Guðmundsson var í sigurliði Emsdetten en liðið lagði Dessau-Rosslauer á heimavelli, 33-32. Ahlener er í þriðja sæti norðurriðilsins í þýsku B-deildinni, Emsdetten í því fimmta og Nordhorn því sjötta. Aue er í sjötta sæti suðurriðilsins. Að síðustu var Íslendingaslagur í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Björn Ingi Friðþjófsson stóð í marki FHK Elite sem tapaði fyrir FC Kaupmannahöfn á heimavelli, 34-24. Arnór Atlason komst ekki á blað í liði FCK. FCK er í fjórða sæti deildarinnar með tíu stig en FHK Elite í því ellefta með aðeins tvö stig eftir sjö leiki.
Handbolti Tengdar fréttir Guðjón Valur með átta mörk Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen sem vann góðan sigur á Hannover-Burgdorf á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 34-24. 14. október 2009 20:13 Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Ísak hættur með ÍR Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Sjá meira
Guðjón Valur með átta mörk Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen sem vann góðan sigur á Hannover-Burgdorf á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 34-24. 14. október 2009 20:13