Ísland með ellefu marka forystu á Noreg Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. júní 2009 19:34 Guðjón Valur Sigurðsson verður ekki með Íslandi gegn Eistlandi um helgina. Mynd/Stefán
Þökk sé myndarlegum sigri á Makedóníu í dag stendur Ísland vel að vígi fyrir baráttuna við Noreg um toppsæti riðilsins. Liðin sem verða í tveimur efstu sætunum í hverjum riðli komast áfram í úrslitakeppni EM sem fer fram í Austurríki á næsta ári. Hins vegar skiptir máli upp á styrkleikaröðun þegar dregið verður í riðla í úrslitakeppninni hvort Ísland verði í fyrsta eða öðru sæti riðilsins. Verði Ísland efst má búast við því að það verði í efsta styrkleikaflokki, annars í öðrum flokki. Ísland og Noregur tryggðu sér bæði farseðilinn til Austurríkis í dag. Ísland með sigri á Makedóníu, 34-26, og Norðmenn með sigri á Eistum á heimavelli, 31-23. Ísland og Noregur eru því efst og jöfn í riðlinum með tólf stig. Ísland mætir Eistum ytra á sunnudaginn í lokaumferð riðlakeppninnar og Norðmenn fara í heimsókn til Makedóníu. Ef Íslendingar og Norðmenn verða enn jafnir að stigum eftir lokaumferðina ræður heildarmarkatala hvort liðið verður ofar í töflunni. Þar stendur Ísland betur að vígi - er með 52 mörk í plús en Noregur 41. Fyrirfram má búast við því að Ísland eigi auðveldari leik fyrir höndum en Norðmenn í lokaumferðinni og því er staða liðsins orðin ansi vænleg. Sigurinn á Makedóníu í dag var því ekki aðeins mikilvægur til að koma liðinu á EM heldur einnig upp á baráttuna um toppsæti riðilsins.
Handbolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira