Innlent

Funda á heimili Geirs

Ingibjörg, Össur, Þorgerður og Geir funda á heimili forsætisráðherra í Vesturbænum.
Ingibjörg, Össur, Þorgerður og Geir funda á heimili forsætisráðherra í Vesturbænum.
Formenn stjórnarflokkanna, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Össur Skarphéðinsson funda nú á heimili Geirs H. Haarde, forsætisráðherra. Óvissa ríkir um ríkisstjórnarsamstarfið en afsögn Björgvins G. Sigurðssonar þykir þó hafa aukið líkur á að stjórnin haldi velli.

Mikil óviss hefur ríkt alla helgina um ríkisstjórnarsamstarfið og hefur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður flokksins fundað stíft með flokksmönnum sínum og baklandi til að ræða málin. Innan Samfylkingarinnar eru skiptar skoðanir um hvort að halda eigi samstarfinu áfram en nokkur aðildarfélaganna hafa ályktað um að slíta eigi því strax. Ingibjörg Sólrún fundaði með formönnum allra aðildarfélaganna í gær og fór yfir málin og með stjórn Samfylkingarinnar.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er mikill þrýstingur innan Samfylkingarinnar á að gera verði breytingar til að hægt sé að halda samstarfinu áfram. Háværasta krafan er sú að Davíð Oddsson seðlabankastjóri víki en seðlabankastjórn heyrir undir forsætisráðuneytið. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þó enn ekki vilja verða við því.


Tengdar fréttir

Björgvin segir líklega af sér

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur boðað til fréttamannafundur nú klukkan hálfellefu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er líklegt að Björgvin tilkynni um afsögn sína sem ráðherra.

Björgvin boðar til blaðamannafundar

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur boðað til fréttamannafundur nú klukkan hálfellefu og er búist við tíðindum sem tengjast framhaldi stjórnarsamstarfsins. Háværar raddir hafa verið allt frá bankahruninu í haust að Björgvin viki sem ráðherra bankamála og forystumenn Seðlabanka og Fjármálaeftirlitsins færu sömuleiðis. Líklegt þykir að einhver tíðindi af þessu tagi verði kynnt í dag.

Þiggur ekki biðlaun

Björgvin G. Sigurðsson hefur tilkynnt ráðuneytisstjóra viðskiptaráðuneytisins að hann afsali sér rétti til biðlauna ráðherra. Björgvin tilkynnti um afsögn sína sem viðskiptaráðherra á fundi með blaðamönnum áðan.

Ríkisstjórnin er að bregðast við þrýstingi

,,Þetta er afleiðing af þeim mikla þrýstingi sem til er orðinn í samfélaginu um meiriháttar uppstokkun í stjórnsýslunni og kröfuna um lýðræðislegt uppgjör með kosningum. Ríkisstjórnin er að drattast til að stíga skref sem hún hefði átt að vera búinn að fyrir löngu síðan," segir Ögmundur Jónssonar, þingflokksformaður Vinstri grænna, um afsögn Björgvins G. Sigurðssonar.

Afsögn Björgvins kemur Ingibjörgu á óvart

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að afsögn Björgvins G. Sigurðassonar sem viðskiptaráðherra hafi komið sér mjög á óvart. Hún segir að Björgvin hafi staðið sig vel sem viðskiptaráðherra. Formaðurinn segir jafnframt of snemmt að segja hver taki við viðskiptaráðuneytinu. Nánar verður rætt við Ingibjörgu í hádegisfréttum sem verður sjónvarpað beint.

Afsögn Björgvins kemur 3 mánuðum of seint

Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að afsögn Björgvins G. Sigurðssonar sem viðskiptaráðherra komi alltof seint.

Allir flokkar axli ábyrgð - vill þjóðstjórn

,,Þó fyrr hefði verið," segir Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins aðspurður um afsögn Björgvins G. Sigurðssonar og stjórnenda Fjármálaeftirlitsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×