Catalina í vikulangt gæsluvarðhald 11. desember 2009 16:46
Miðbaugsmaddaman, Catalina Ncogo, hefur verið úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald en hún hefur þegar sætt varðhaldi í tvær vikur. Kona sem var einnig handtekinn í tengslum við málið hefur verið sleppt. Catalina er grunuð um aðild að mansali og að hafa haft milligöngu um vændi. Hún var handtekin í síðustu viku ásamt konu um tvítugt en þær voru úrskurðaðar í gæsluvarðhald til 11. desember. Yngri konunni var sleppt úr haldi í gær en rannsóknarhagsmunir voru ekki lengur fyrir hendi hvað varðar hennar þátt í málinu. Báðar eru íslenskir ríkisborgarar. Rannsókn málsins miðar vel en henni er hvergi nærri lokið að sögn lögreglu. Rannsóknin hefur staðið yfir undanfarnar vikur en í tengslum við hana lokaði lögreglan fyrir vændisstarfsemi í húsi í miðborginni. Að minnsta kosti þrjár aðrar konur koma við sögu í málinu en þær eru taldar hafa lagt stund á vændi. Umræddar konur eru allar á fertugsaldri og af erlendu bergi brotnar. Mál einnar þeirrar er jafnframt rannsakað sem mansalsmál en konurnar þrjár hafa verið færðar til skýrslutöku hjá lögreglu. Rannsóknin tekur einnig til þeirra sem keyptu kynlífsþjónustuna sem veitt var og hafa nokkrir verið yfirheyrðir vegna þessa.
Mál Catalinu Ncogo Lögreglumál Vændi Tengdar fréttir Samstarfskonu Catalinu hugsanlega sleppt Gæsluvarðhald rennur út í dag yfir Catalinu Ncogo og annarri konu sem eru grunaðar um mansal og að hafa haft milligöngu um vændi. Þær voru handteknar fyrir tveimur vikum síðan og voru strax úrskurðaðar í varðhald, aðeins tveimur dögum eftir að Catalina hafði verið dæmd í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa haft milligöngu um vændi og fíkniefnabrot. 11. desember 2009 10:16 Vilja lengra gæsluvarðhald yfir Catalinu - vitorðsmanni sleppt Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Catalinu Ncogo, sem er grunuð um að hafa haft milligöngu um vændi og mansal. Kona sem var handtekin með henni, og er grunuð um sömu brot, hefur verið sleppt. 11. desember 2009 14:04 Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Fleiri en ein hópnauðgun til rannsóknar Innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að hættustigið verði lækkað á komandi árum Hryðjuverkaógn, setustofa á Esjunni og milljarðar í húfi Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Sauð á starfsmanni sem löðrungaði íbúa á hjúkrunarheimili Fleiri en ein hópnauðgun til rannsóknar Kynnir áform um að leggja niður stjórn Sjúkratrygginga Pétur Jökull fékk átta ára dóm í Landsrétti Jómfrúarræða um Súðavíkurhlíð og skömmu síðar lenti sonur hans þar í slysi Þakgarðar og bílalyfta í stað bensínstöðvar Loftleiðir stofnuðu Cargolux til að nýta verðlitlar flugvélar Birtir niðrandi ummæli sem lýsi hatri í garð trans fólks Veiðigjöldin verði keyrð í gegn Óvíst hvort að tvöföldun rýma muni nægja Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Markaðir kættust eftir að Trump frestaði ofurtollum Bein útsending: Geðheilbrigði fyrir öll Pallborðið: Er „woke-ismi“ pólitískur rétttrúnaður? Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Alvarleg frávik í meðferð og umgengni við hryssur í blóðtöku Sjá meira
Samstarfskonu Catalinu hugsanlega sleppt Gæsluvarðhald rennur út í dag yfir Catalinu Ncogo og annarri konu sem eru grunaðar um mansal og að hafa haft milligöngu um vændi. Þær voru handteknar fyrir tveimur vikum síðan og voru strax úrskurðaðar í varðhald, aðeins tveimur dögum eftir að Catalina hafði verið dæmd í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa haft milligöngu um vændi og fíkniefnabrot. 11. desember 2009 10:16
Vilja lengra gæsluvarðhald yfir Catalinu - vitorðsmanni sleppt Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Catalinu Ncogo, sem er grunuð um að hafa haft milligöngu um vændi og mansal. Kona sem var handtekin með henni, og er grunuð um sömu brot, hefur verið sleppt. 11. desember 2009 14:04