Innlent

Árni Páll kallaði andstæðinga sína fífl

Valur Grettisson skrifar
Árni Páll og Siv Friðleifsdóttir voru saman á framboðsfundi í Garðabæ þar sem hann kallaði andstæðinga sína fífl.
Árni Páll og Siv Friðleifsdóttir voru saman á framboðsfundi í Garðabæ þar sem hann kallaði andstæðinga sína fífl.

Þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og oddviti listans, Árni Páll Árnason, kallaði pólitíska andstæðinga sína fífl á fjölmennum og vel heppnuðum framboðsfundi sem haldinn var í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í gær.

Samkvæmt menntaskólanema sem sat í sal sem Vísir ræddi við þá var mikill hiti í frambjóðendum á fundinum. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, frambjóðandi Vinstri grænna tókst harkalega á við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, um skattamál.

Þó bar hæst þegar Árni Páll Árnason var að svara fyrirspurnum úr sal, þá sagði hann andstæðinga sína fífl, það er að segja Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk.

Þeir sem fylgdust með sögðu orðin hafa fallið í grýttan jarðveg. Í raun hefðu þau verið úr takti við annað á þessum fundi og svo virðist sem Árni hefði snöggreiðst eins og einn neminn orðaði það.

Í lokin sagði Siv Friðleifsdóttir, frambjóðandi Framsóknarflokksins, að þessi fundur væri sennilega talsvert ruglandi fyrir menntaskólanemanna í ljósi þess að stjórnmálamenn kalla andstæðinga sína sjaldnast fífl.

Framsóknarmaðurinn Hlini Melsted Jóngeirsson var á fundinum og bloggaði um málið á heimasíðu sinni. Þegar Vísir ræddi við hann sagði hann orðin hafa komið flestum í opna skjöldu.

„Árni Páll var bara úti að aka. Oddviti flokks lætur ekki svona út úr sér," sagði hann hneykslaður á Samfylkingarmanninum. Þegar leitað var viðbragða hjá Siv Friðleifsdóttur vegna málsins vildi hún ekki tjá sig um málið, hún tæki ekki þátt í ómálefnalegri orðræðu Árna Páls.

Sjálfstæðiskonan Ragnheiður Ríkharðsdóttir var á fundinum en ekki náðist í hana til þess að bera undir hana ummæli Árna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×