Lífið

Lögreglan mætti ekki á pókermót Verzló

Skólalíf skrifar
Þokkaleg pókerhönd.
Þokkaleg pókerhönd.
„Þetta gekk alveg rosalega vel,“ segir Agnes Jóhannsdóttir, formaður íþróttaráðs Verzlunarskólans, um pókermót sem ráðið stóð fyrir í gærkvöld. Alls mættu 64 strákar til leiks og spiluðu fram eftir kvöldi. Að sögn Agnesar borguðu keppendur þúsund króna þátttökugjald, og voru þeir spilarar sem lengst héldu út leystir út með veglegum gjafabréfum hjá nágranna Verzló, Kringlunni.

Hún segir aðspurð að pókerkeppni skólans eigi þrátt fyrir allt meira skylt við venjulegt spilakvöld en fjárhættuspil, og að lögregla hafi ekki haft afskipti af mótinu eins og gerst hefur í örfá skipti þegar um skipulagt pókerspil er að ræða.

„Við erum ekkert að spila upp á peninga. Menn borga bara fyrir að taka þátt og menn hvorki tapa né græða á þessu.“

Hún segir ekki hafa slegið í brýnu við yfirstjórn skólans vegna mótsins.

„Þau tóku þannig séð vel í þetta, en lögðu áherslu á að það yrði ekki spilað upp á peninga. Þeim hefði þótt það vera á gráu svæði,“ segir Agnes.

Athygli vekur að aðeins strákar tóku þátt í pókermóti íþróttaráðsins, en aðspurð segist Agnes telja að íþróttin sé enn hálfgert strákasport.

„Já, það er það náttúrulega, en það þýðir ekki að það þurfi að vera það. Við verðum að reyna að virkja stelpurnar meira og ég ætla að gera allt sem þarf til að ná því markmiði. En pókerinn - það liggur við að það séu fáar stelpur sem vita hvað þetta er. Ég labbaði til dæmis um borðin í gær og var að spyrja hvað það væru margir teningar notaðir. Það er ennþá verið að gera grín að mér fyrir það,“ segir Agnes hlæjandi að lokum.

Hraðbraut hélt einnig pókermót í lok ágúst síðastliðinn, en eftir því sem Skólalíf kemst næst fór einnig allt vel fram þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.