Innlent

Gæsluvarðhald til 11. maí

Búið er að leiða alla þrjá mennina sem voru handteknir á Austurlandi í dag fyrir dómara. Þeir hafa allir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 11. maí.

Vísir hefur eftir áreiðanlegum heimildum að magnið sem þeir reyndu að smygla til landsins sé yfir hundrað kíló. Ekki er vitað hvaða efni er um að ræða, en samkvæmt lögreglunni þá er um nokkrar tegundir að ræða, sem á enn eftir að efnagreina.


Tengdar fréttir

Einn hinna handteknu áður siglt skútu til Hornafjarðar

Einn hinna handteknu í skútumálinu sem kom upp í dag hefur áður siglt skútu til Hafnar í Hornarfirði. Um er að ræða þrítugan karlmann sem áður hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnasmygl.

Nokkrir handteknir og þyrlur lentar

Þyrlur Landhelgisgæslunnar er lentar á Höfn í Hornafirði og Fokker vél gæslunnar var að taka á loft. Ekki þykir ljóst hvað er um að vera en samkvæmt heimildum Vísis þá veitti gæslan smyglskútu eftirför.

Skútunnar enn leitað - tugir kílóa haldlögð

Lögreglan leitar enn að skútunni samkvæmt fréttatilkynningu sem lögreglan sendi frá sér vegna fíkniefnamálsins. Lögreglan hefur lagt hald á tugi kílóa af fíkniefnum en þeir vilja ekki gefa upp hvaða tegund um er að ræða en þær eru fleiri en ein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×