Hnífaæði meðal breskra unglinga Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. júní 2009 07:14
Sífellt fleiri breskir unglingar ganga nú um vopnaðir hnífum og hafa þarlend yfirvöld látið í ljós áhyggjur af þróuninni. Bresku unglingarnir eru komnir í nokkurs konar vígbúnaðarkapphlaup ef svo mætti segja og hefur ofbeldisverkum, þar sem hnífum er beitt, fjölgað mjög undanfarna mánuði. Félagsmálayfirvöld segja það áberandi að hnífanotkun og hnífaburður hafi einkum aukist í hverfum þar sem lágstéttarfólk er búsett og fólk sem stendur höllum fæti fjárhagslega og félagslega. Nú er svo komið að morðmálum, þar sem hnífar koma við sögu, hefur fjölgað um 26 prósent milli áranna 2005 og 2007 og frá sjúkrahúsunum streyma upplýsingar um að fólki með áverka eftir hnífaárásir hafi fjölgað þar ört undanfarið. Oft tengist ofbeldið mest unglingagengjum sem heyja blóðug átök sín á milli um yfirráðasvæði í hverfunum en börn allt niður í sjö ára gömul hafa verið gripin með hnífa á sér og segja yfirvöld þá þróun vera sérstakt áhyggjuefni. Þá hefur það verið reiknað út að sá kostnaður, sem bresk yfirvöld beri vegna hvers kyns ofbeldis þar sem hnífum er beitt, sé rúmlega 1,2 milljarðar punda á ári sem jafngildir um 240 milljörðum króna. Flest börn sem byrja að ganga með hníf á sér eru 11 ára gömul og tengist sá aldur yfirleitt flutningi frá barnaskóla yfir í gagnfræðaskóla og þeim félagslegu breytingum sem hann hefur í för með sér.
Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Innlent Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Erlent Erlendir ferðamenn gripnir glóðvolgir Innlent Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Innlent Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Innlent Fleiri fréttir Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Skoða kostnaðinn við yfirtöku Grænlands Loka síðasta kolaorkuveri Finnlands Demókratar unnu dýrustu dómarakosningar Bandaríkjanna Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Talaði í 25 tíma og sló Bandaríkjamet Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Sjá meira