Innlent

Horfði á ættarsetrið brenna í sjónvarpinu

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Jón Ragnarsson.
Jón Ragnarsson.
Hótel Valhöll var í eigu fjölskyldu Jóns Ragnarssonar veitingamans í um fjörutíu ár. Foreldrar hans þau Ragnar Jónsson og Júlíana Sigurbjörg Erlendsdóttir eignuðust hótelið árið 1963 og var það í eigu fjölskyldunnar allt til ársins 2002 þegar íslenska ríkið keypti húsið. Það var því að vonum erfitt fyrir Jón að fylgjast með fréttum í kvöld þar sem hann horfði á Hótel Valhöll í ljósum logum.

„Þetta hótel hafði mikla sálræna þýðingu fyrir mína fjölskyldu," segir Jón Ragnarsson, fyrrum eigandi Hótel Valhallar. „Maður var þarna um langt árabil við þennan rekstur. Öll sumur sem unglingur þannig að það var sjokk að horfa á þetta í kvöld."

Hann segir hótelið eiga sinn stað í hjarta þjóðarinnar. Gjarnan sé litið á það sem órjúfanlegan hluta Þingvalla. Honum finnst því vart annað koma til greina en að reisa hótelið á ný í sömu mynd. „Hótelið var oft á tíðum ímynd Þingvalla," segir hann og rifjar upp sögu: „Einhvern tímann var Séra Heimir heitinn Steinsson, þjóðgarðsvörður, að ræða við mann á leiðunum um málefni líðandi stundar. Þessi maður var með börnin sín með sér og þeim var eitthvað farið að leiðast biðin eftir pabba sínum svo þau kölluðu á hann: „Pabbi, komdu út á Þingvöll að kaupa ís." Þá var Valhöll Þingvöllur í þeirra augum. Heimir leit víst snúðugt á börnin," segir Jón og hlær við upprifjunina.

Jón segir rekstrargrundvöll hótelsins þó vera gjörbreyttan frá því sem áður var. „Hér áður fyrr biðu menn vorsins til að komast á Þingvöll. Það hefur breyst nú í seinni tíð. Aðstæður er öðruvísi, til dæmis er búið að leiða alla traffík frá staðnum og þess háttar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×