Hlutabréf í Carnegie hafa fimmfaldast í verði 5. janúar 2009 09:53
Hlutabréf í sænska bankanum Carnegie fimmfölduðust í verði yfir áramótin. Við lok markaðarins á föstudag voru hlutirnir seldir á 1,25 kr. sænskar en fyrir áramót er HQ Direct hóf viðskipti með hlutina utanmarkaðar þann 29. desember var verð þeirra 25 aurar sænskir. Milestone á 10% hlut í Carnegie en sænska ríkið yfirtók móðurfélag bankans í nóvember s.l.. Carnegie var síðan afskráð í sænsku kauphöllinni. Síðasta skráða verð á hlut í Carnegie í nóvember var tæpar 18 kr. sænskar. HQ Direct var áður Glitnir AB í Svíþjóð og tók að sér að sjá um viðskiptin með hluti í Carnegie skömmu fyrir áramótin. Samkvæmt frétt á Dagens Industri telja fjárfestar að eftir einhverju sé að slægjast í bankanum miðað við þessa hækkun á hlutunum. HQ Direct tekur 5 aura fyrir sölu á hverjum hlut. Markaðsvirði Carnegie er samkvæmt þessum tölum 89 milljónir sænskra kr. eða sem svarar til um 1,3 milljarða kr.. Í nóvember, áður en viðskiptin með hlutina voru stöðvuð í kjölfar yfirtöku sænska ríkisins var markaðsvirðið hinsvegar 1,3 milljarður sænskra kr. eða tæplega 18 milljarðar kr..
Mest lesið Staðreyndum snúið á hvolf til að eigna ríkisstjórninni verðbólguna Viðskipti innlent Seðlabankinn hafi ekki önnur úrræði en að lækka vexti Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Tónleikastöðum fækkar: „Þetta er bara sorgleg þróun“ Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Spá áframhaldandi óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Samstarf „Allt að því galið“ að taka ekki þátt í séreignarsparnaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira