Bankarnir hafa 90 daga til að gera upp ólögmæt lán Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. desember 2010 12:28 Árni Páll Árnason, enfahags- og viðskiptaráðherra.
Bankar þurfa að eiga frumkvæði að því að endurgreiða skuldurum ofgreidd gengislán innan 90 daga frá því að ný lög um um uppgjör gengistryggðra lána taka gildi en þau voru samþykkt á Alþingi í laugardag og taka þegar gildi. Lögin sem samþykkt voru á Alþingi á laugardag, síðasta starfsdag þingsins á þessu ári, veita fyrirmæli um og er ætlað að leysa úr ágreiningi um hvernig skuli gera upp gengistryggð lán sem dæmd voru ólögmæt af Hæstarétti. Samkvæmt hinum nýsamþykktu lögum skal miða um uppgjör lánanna við lægstu vexti sem Seðlabanki Íslans ákveður á almennum verðtryggðum útlánum. Og skal um verðtryggingu miða við vísitölu neysluverðs.Uppgjör að frumkvæði lánveitanda Samkvæmt lögunum þarf uppgjör vegna ofgreiðslu á gengistryggðum lánum að fara fram að frumkvæði lánveitanda innan 90 daga frá gildistöku laganna. Ákvæðið tekur ekki aðeins til húsnæðislána heldur einnig til lána- og eignaleigusamninga sem einstaklingar hafa gert vegna kaupa á einkabíl og er bönkunum og eignaleigufyrirtækjum skylt samkvæmt hinum nýju lögum að senda skuldaranum útreikning á nýjum höfuðstól og eða endurgreiðslu á því sem hann hefur ofgreitt innan sextíu daga. Er efnahags- og viðskiptaráðherra heimilt að fela umboðsmanni skuldara að hafa eftirlit með því að bankarnir standi í stykkinu varðandi þessa útreikninga. Samkvæmt lögunum er skuldurum með ólögleg gengistryggð lán einnig veittur sá kostur að færa höfuðstól lánsins í erlendar myntir eins og um gilt erlent lán hafi verið að ræða þegar það var veitt. Ef þessi leið er valin falla niður heimildir til leiðréttingar á greiðslum og höfuðstól samkvæmt ákvæðum laganna. Þá mæla lögin fyrir um endurupptaka verði heimiluð í málum þar sem dómur hefur gengið um kröfu um ólögmæta gengistryggingu þrátt fyrir að þriggja mánaða frestur um endurupptöku samkvæmt lögum um meðferð einkamála, sé liðinn.
Mest lesið Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent „Ég lagði allt undir“ Innlent Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Úrslitastund í troðfullri Valhöll Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli Spáir því að Bjarni gangi til liðs við Miðflokkinn Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sú breiðfylking sem hann var Sjá meira