Innlent

Siðanefnd BÍ vísar kæru forseta ASÍ frá

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gylfi Arnbjörnsson kærði Eyjuna til siðanefndar BÍ.
Gylfi Arnbjörnsson kærði Eyjuna til siðanefndar BÍ.
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur vísað frá kæru Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, gegn fréttavefnum Eyjunni.

Gylfi kærði fyrirsögn í frétt Eyjunnar sem birtist þann 14. október 2010. Þar stóð „Forseti ASÍ eindregið gegn því að skuldir heimilanna verði lækkaðar". Þorfinnur Ómarsson benti hins vegar á að fyrirsögninni hefði verið breytt daginn eftir birtingu fréttarinnar og Gylfa boðið að gera grein fyrir sjónarmiðum.

Siðanefnd telur að leiðrétting hafi borist innan hæfilegs tíma eftir að krafa um leiðréttingu barst og vísaði kærunni því frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×