Mansalsmál: Sönnunargögnum ábótavant 27. janúar 2010 19:15
Saksóknari í mansalsmálinu fór fram á frest eftir að í ljós kom að aðalsönnunargagninu í málinu var verulega ábótavant. Tveir hinna ákærðu voru yfirheyrðir aftur fyrir dómi, eftir að fórnarlambið hafði sakað þá um að hafa neytt sig til kynferðislegra athafna. Réttarhöldin eru lokuð almenningi og fjölmiðlum en þau tóku óvænta stefnu í gær þegar fórnarlambið í málinu, 19 ára Litháísk stúlka, sakaði tvo þeirra ákærðu um að hafa neytt sig til munnmaka. Það á að hafa gerst á sama tíma og lögregla leitaði stúlkunnar eftir að hún hvarf úr umsjá félagsmálayfirvalda. All seru sex aðilar ákærðir í málinu, fimm Litháar og einn íslendingur. Í kjölfarið fór saksóknari fram á að mennirnir, sem báðir eru Litháar, yrðu aftur yfirheyrðir fyrir dómi og var það gert í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu neituðu þeir báðir ásökunum stúlkunnar. Aðal sönnunargagn ákæruvaldsins í málinu á að sýna fram á hvar Litháarnir voru staðsettir á ákveðnum tíma í gegnum farsíma þeirra. Fyrir dómi í gær kom hinsvegar í ljós að mikið vantaði upp á þau gögn og í kjölfarið fór saksóknari fram á frest til þess að bæta úr gögnunum. Framburður stúlkunnar þykir afar óstöðugur, sérstaklega í ljósi þess að hún nefndi fyrst í gær að hún hefði verið neydd til munnmaka. Einn svipaður dómur hefur fallið hér á landi. Þá var Catalina Ncoco sýknuð af mansali en eitt af því sem lá til grundvallar sýknunni var að framburður meints fórnarlambs þótti ótrúverðugur og mótsagnakenndur. Munnlegur málflutningur í málinu fer fram 9.febrúar næstkomandi.
Mest lesið Sprautan sprakk og konan heppin að halda auganu Innlent Lýsa yfir hættustigi vegna yfirvofandi eldgoss Innlent Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð Erlent Nítján lík sögð hafa fundist eftir flugslys í Washington Erlent Ekki ljóst hvort skýringar Sjálfstæðismanna haldi vatni Innlent Rússneskir heimsmeistarar meðal farþega vélarinnar Erlent Segir Sjálfstæðismenn hyggja á setuverkfall verði þeim vísað á dyr Innlent Ýtti konu fyrir bíl Innlent Hæstiréttur blandar sér í málið sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Innlent Fjórðungur barna enn í bleyju í aðlögun fyrir grunnskóla Erlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokað vegna fastra bíla Mjög langt á milli svo ríkissáttasemjari reyni að höggva á hnútinn Björgunarskipið kallað út á mesta forgangi Kennarar svara umboðsmanni barna Vonarglæta, óveður og barátta um skrifstofur Verkföllum kennara aflýst samþykki deiluaðilar tillögu ríkissáttasemjara á laugardag „Skutlari“ áreitti stúlku og varð fyrir alvarlegri líkamsárás Lýsa yfir hættustigi vegna yfirvofandi eldgoss Langt á milli deiluaðila og reynt að höggva á hnútinn Bein útsending: Ríkissáttasemjari fer yfir innanhússtillöguna Ýtti konu fyrir bíl Missti stjórn á bílnum og rakst utan í tvo Hæstiréttur blandar sér í málið sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Skipaður skrifstofustjóri fjármála Sextíu flugferðum aflýst Sprautan sprakk og konan heppin að halda auganu Vegum um Hellisheiði og Þrengsli lokað Skilti Skúbbs þarf að fjúka í nágrannadeilum sem líkt er við stríð Lilja útilokar ekki formannsframboð og vill flýta flokksþingi Ekki ljóst hvort skýringar Sjálfstæðismanna haldi vatni Umferð um brautina gangi hægt Leggur fram innanhússtillögu Plottað um heimsyfirráð eða dauða Sterk tilfinningabönd Sjálfstæðismanna við herbergið koma Guðmundi Ara í opna skjöldu Kennaradeilan enn í hnút og mannskætt flugslys í Washington Alla grunaði bróðurinn um að standa að baki skálduðum ásökunum Búið að opna Reykjanesbraut á ný Sleginn yfir því hversu margir setji sig í samband við börn daglega Segir Sjálfstæðismenn hyggja á setuverkfall verði þeim vísað á dyr Að minnsta kosti fimm vilja verða rektor Háskóla Íslands Sjá meira