Innlent

Ásókn í greiðslu arfs fyrir skattahækkun

Yfirleitt er það svo að mest er að gera í þessum málum rétt fyrir áramót en sýslumannsembættin sem Fréttablaðið ræddi við töldu mun meira að gera í ár en áður. fréttablaðið/stefán
Yfirleitt er það svo að mest er að gera í þessum málum rétt fyrir áramót en sýslumannsembættin sem Fréttablaðið ræddi við töldu mun meira að gera í ár en áður. fréttablaðið/stefán
Erfðafjárskýrslum, til að hægt sé að greiða út arf fyrir­fram, hefur fjölgað mikið undanfarnar vikur. Erfðafjárskattur mun hækka úr fimm prósentum í tíu um áramótin. Sýslumanns­embættin í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og á Akureyri finna fyrir þessari aukningu.

„Það er mikil aukning. Skatturinn á að hækka um helming um áramót þess vegna er fólk að gera þetta núna,“ segir Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Kópavogi og Hafnarfirði. Hann segir að byrjað hafi að fjölga í kringum þann tíma sem hugmyndir um hækkun skattanna heyrðust. Engar tölur eru til um fjölgunina enn sem komið er, en sem dæmi voru fimmtán erfðafjárskýrslur lagðar fram í Kópavogi á mánudag. Það þykir mjög mikið. Guðgeir segist reikna með að áfram verði allt á fullu fram að áramótum. „Það er æskilegt að fólk komi sem fyrst með þetta til þess að það takist að afgreiða allt.“

Sömu sögu er að segja hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík. Þar er mjög mikið um að fólk leggi fram erfðafjárskýrslur í þessum tilgangi nú, að sögn Þuríðar Árnadóttur skrifstofustjóra. Fyrst og fremst hafi orðið vart við fjölgun mála í desember. „Við sjáum fram á að það verði áfram þessa daga fram að jólum og svo milli jóla og nýárs,“ segir hún. Reynt verði að fara yfir allar skýrslur sem berist. „Við leggjum okkur öll fram við það og vonandi tekst það.“

Björn Jósef Arnviðarson, sýslumaður á Akureyri, segir það tilfinningu sína að heldur meira hafi verið um mál af þessu tagi upp á síðkastið. Að hans sögn er þó alltaf mikið að gera í erfðafjármálum undir lok árs.

Samkvæmt fjárlögum næsta árs mun erfðafjárskattur hækka úr fimm prósentum í tíu prósent um áramótin. Þegar um dánarbú er að ræða er ein milljón króna undanþegin skatti nú en sú upphæð hækkar í eina og hálfa milljón við breytingarnar. Áætlað er í fjárlögum að þessar breytingar muni skila ríkissjóði einum milljarði króna í viðbótartekjur á næsta ári.

thorunn@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×