Innlent

Vonir bundnar við framkvæmdasjóð

Tæplega 400 þúsund manns koma að fossinum á ári. Þar er stöðugur ferðamannastraumur sem innviðir staðarins þola engan veginn.fréttablaðið/gva
Tæplega 400 þúsund manns koma að fossinum á ári. Þar er stöðugur ferðamannastraumur sem innviðir staðarins þola engan veginn.fréttablaðið/gva

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mun leggja fram frumvarp um stofnun framkvæmdasjóðs ferðaþjónustunnar í vetur. Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu og þeir sem koma að umhverfis­vernd líta á svarta skýrslu Umhverfisstofnunar (UST) um ástand friðlýstra svæða sem lokaviðvörun til stjórnvalda um verndun helstu náttúrugersema þjóðarinnar.

Þetta er meðal þess sem kom fram á málþingi sem umhverfis- og iðnaðarráðuneytið stóðu fyrir í vikunni. Tilefnið var úttekt UST á ástandi friðlýstra svæða vegna ferðamanna, sem Fréttablaðið sagði frá á fimmtudag.

Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, segir að ekki aðeins liggi mikilvæg svæði undir skemmdum heldur sýni rannsóknir UST að ferðamenn, jafnt sem heimamenn, séu að missa þolinmæðina. „Það er vaxandi óánægja með að hafa friðlýst svæði í sinni heimabyggð. Því fylgir mikill ágangur og mönnum finnst þeir sitja uppi með kostnaðinn.“

Iðnaðarráðherra, sem er jafnframt ráðherra ferðamála, vék að því í erindi sínu á málþinginu að á sama tíma og ferðaþjónustan nálgist það hratt að verða mikilvægasta uppspretta gjaldeyristekna fyrir þjóðarbúið sé útilokað að mikilvægustu ferðamanna­staðirnir á Íslandi geti tekið við fyrirsjáanlegri fjölgun ferðamanna.

„Markmiðið með þessum sjóði er að tryggja fjármagn til að byggja upp fjölsótta ferðamannastaði og bæta aðstöðu og aðgengi að náttúruperlum þar sem verja þarf náttúruna eða auka öryggi. Eins að fjölga aðgengilegum stöðum þannig að álag aukins ferðamannasjóðs dreifist betur,“ sagði Katrín.

Hún reifaði jafnframt að ekki væri samstaða um það hvernig gjaldtöku yrði háttað, en stefnt væri að því að nýtt frumvarp fjármálaráðherra um umhverfisgjald verði lagt fram samhliða frumvarpi Katrínar um framkvæmdasjóðinn.

Hugmyndin er ekki ný af nálinni. Katrín kynnti hana á Iðnþingi í mars. Þá gerði ráðherra sér vonir um að lífeyrissjóðirnir kæmu að stofnun sjóðsins og „síðar á árinu“ yrðu 500 til 700 milljónir til ráðstöfunar.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætis­ráðherra sagði á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins um sama leyti að sjóðurinn marki „upphaf nýrrar sóknar í uppbyggingu sem á að undirbúa okkur undir að taka við milljón ferðamönnum eftir tíu ár“.

svavar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×