Stúlkan var berfætt og blóðug 22. desember 2010 06:00 Aðkoman var slæm þegar lögregla kom á vettvang.
Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Annar maður á svipuðu reki var sýknaður af þátttöku í líkamsárásinni. Það var undir morgun í apríl 2009, að lögreglu var tilkynnt um að stúlka hefði orðið fyrir líkamsárás í húsasundi í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögreglumenn komu á vettvang hittu þeir fyrir mennina tvo og stúlku sem var í miklu uppnámi, berfætt og blóðug. Annar mannanna var með skurði á höndum sem mikið blæddi úr, en föt hins mannsins voru blóðug. Stúlkan sagði að hinn fyrrnefndi væri fyrrverandi unnusti sinn. Hefði hann brotist inn í hús hennar, lamið hana og sparkað í hana.Unnustinn fyrrverandi játaði að hafa veist að stúlkunni og hrint henni, en í ljós kom við réttarhöld að hinn maðurinn sem ákærður var í málinu, hafði aðeins orðið samferða árásarmanninum heim til hennar. Hann var því sýknaður. Dómurinn taldi árásarmanninum það til málsbóta að hann hefði af sjálfsdáðum leitast við að bæta fyrir brot sitt með því að biðja stúlkuna afsökunar, greiða henni bætur, setja upp rúður í stað þeirra sem hann hafði brotið í húsi hennar og leita til sálfræðings.- jss
Mest lesið Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Innlent Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Innlent Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Innlent „Ég lagði allt undir“ Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það Innlent Skorað á Sigurð Inga að afturkalla tilmæli Svandísar Innlent Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokk á útleið Húsnæði Stuðla ráði ekki við málaflokkinn og úrbætur gengið hægt Sé líklega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði Segist ekki hafa verið beitt þrýstingi Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi Fjallið hafi verið hátt og ekki tekist að klífa það „Ég lagði allt undir“ Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Þau skipa framboðslista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi Þau taka þátt í prófkjöri Pírata Bryndís Haraldsdóttir tekur þriðja sætið Samþykktu framboðslista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi Græningjar vilja fara fram í öllum kjördæmum Jens í fyrsta og Njáll Trausti í öðru Bjarkey gefur ekki kost á sér Þórdís Kolbrún bar sigur úr býtum í Kraganum Björn hafði betur gegn Teiti Sanna leiðir lista Sósíalistaflokks í Reykjavík suður Ingveldur skákaði tveimur sitjandi þingmönnum Guðrún oddviti og Vilhjálmur í öðru sæti í Suðurkjördæmi Miðbær með skautasvelli byggður í Þorlákshöfn Teitur dregur oddvitaframboðið til baka Flutningurinn góður fyrir Framsókn en slæmur fyrir Sjálfstæðisflokk Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Gerðu allt klárt fyrir Stuðlahópinn á örfáum klukkustundum Úrslitastund í troðfullri Valhöll Sverrir Bergmann sækist eftir 3. sæti í Suðurkjördæmi Útiloka ekki samstarf en segja málefnin skipta mestu máli Spáir því að Bjarni gangi til liðs við Miðflokkinn Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sú breiðfylking sem hann var Sjá meira