Innlent

Presturinn hitti eldri borgarana

Styrkja á samband aldraðra við kirkjuna.
Styrkja á samband aldraðra við kirkjuna.
Auka á samstarf á milli kirkju og eldri borgara í Stykkishólmi. Samkvæmt tillögu þjónustuhóps aldraðra á íþrótta- og tómstundafulltrúi bæjarins að koma á þessu aukna samstarfi sem sagt er geta verið af margvíslegum toga.

„Í kirkjunni væri til dæmis hægt að hafa stundu með prestinum og bjóða svo upp á súpu í safnaðarheimilinu. Þarna gæti ef til vill komist á samstarf við skólana,“ segir í tillögunni sem bæjar­ráð samþykkti. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×