Innlent

Stálu skjávörpum og skemmdu tíu tölvur

Fjórum tölvum og minnsta kosti tveimur skjávörpum var stolið úr Ísaksskóla í nótt. Þjófar brutu sér leið inn um bakinngang að íþróttasal skólans.

Þjófarnir röðuðu tölvubúnaði á miðju gólfinu og virðast hafa ætlað að hafa með sér á brott.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni misstu þjófarnir um tíu tölvur í gólfið og skemmdu.

Ljóst er að tjónið er talsvert. Verðmæti þýfisins hleypur á milljónum fyrir utan skaðann sem þjófarnir ollu.

Lögreglan hefur engan grunaðan um verknaðinn en málið er í rannsókn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×