Innlent

Dagblöðum fækkað úr fimm í tvö

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Dagblöðum á Íslandi hefur fækkað úr fimm í tvö frá árinu 1995 og hafa ekki verið færri síðan á öðrum áratug síðustu aldar. Í gögnum frá Hagstofunni kemur fram að vikublöðum hefur líka nokkuð fækkað á síðustu árum, eða úr 25 þegar best hefur látið í 21 í fyrra.

Hagstofan segir að tvö vikublaðanna sem komu út á síðasta ári hafi verið landsblöð, en svonefnd landshluta- og staðarblöð, voru 19 talsins. Af þeim vikublöðum sem út voru gefin á síðasta ári voru 11 seld blöð en 10 fríblöð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×